Reiðtúr á annan
Hestamannafélagið Léttfeti á Sauðárkróki blæs á móti suðvestanáttinni og ætlar að standa fyrir fjölskyldureiðtúr á öðrum páskadegi úr hesthúsahverfinu kl.14:00, enda allar líkur á að veðrið verði orðið skikkanlegt.
Á eftir eða um klukkan 16:00 verður kaffisala í Tjarnarbæ. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna hvort sem farið er ríðandi eða bara komið í kaffi.