Reka garðyrkjustöðvar á Laugarbakka og Kleppjárnsreykjum

Einar Pálsson og Kristjana Jónsdóttir keyptu garðyrkjustöðina Skrúðvang á Laugarbakka síðasta sumar en þau eiga jafnframt Garðyrkjustöðina Sólbyrgi í Reykholtsdal. Í apríl s.l. hlutu þau hvatningarverðlaun garðyrkjunnar, en þau verðlaun eru veitt þeim sem vinna að athyglisverðum og framsæknum nýjungum í greininni og eiga skilið að fá hvatningu til að halda áfram á sömu braut. Frá þessu er greint á vefnum skessuhorn.is.

Fram kemur að Einar og Kristjana hafi komið í Sólbyrgi sem algjörir nýgræðingar í greininni, en áður en þau keyptu þar höfðu þau varla stigið inn í gróðurhús. Það var því fjölmargt sem þau þurftu að ná tökum á og læra frá grunni. Áður höfðu þau búið í Vestmannaeyjum þar sem Einar starfaði við sjómennsku og bílaviðgerði og Nanna starfaði hjá Íslandspósti. "Helsti kosturinn sem þau höfðu með sér var tækniþekking og útsjónarsemi, eins og að kunna aðeins að bjarga sér aðeins með rafmagn, lagnir, gler og þess háttar." Einar skellti sér svo í fjarnám á ylræktarbraut við Garðyrkjuskólann á Reykjum. Því námi lauk hann vorið 2012.

Í frétt Skessuhorns segir að garðyrkjustöðin Skrúðvangur þarfnist verulegs viðhalds og að hún verði tekin í gegn á næstu misserum. Þetta sumarið verða þau með jarðarber í báðum húsunum og hafa þau fengið heimafólk til að sjá um stöðina í sumar. Þar mun gestum og gangandi gefast tækifæri til að koma við og kaupa fersk jarðarber.

Í Sólbyrgi hafa Einar og Nanna verið að rækta agúrkur, tómata, gulrætur, paprikur, kúrbít og jarðarber. Þau hafa einnig gert tilraunir með kryddjurtir og verða með þær til sölu á markaði í Borgarnesi í sumar.

 

Fleiri fréttir