Rekstrarniðurstaða jákvæð um 126,7 milljónir
Ársreikningur ársins 2014 var samþykktur við síðari umræðu í sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar í síðustu viku. Niðurstaða rekstrar A og B hluta sveitarsjóðs er jákvæð um 126,7 milljónir króna. Rekstrartekjur voru í heildina 3,9 miljarðar króna og hækkuðu þær aðeins um 0,8% á milli ára. Rekstrarútgjöld önnur en fjármagnsliðir hækkuðu um 9,3% og námu samtals 3,6 milljörðum króna.
Laun og launatengd gjöld voru 2.105 milljónir króna á árinu 2014 og hækkaði þessi rekstrarliður um 6,4% frá árinu 2013 sem rekja má til kjarasamningshækkana launa. Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu á árinu 2014, 471 millj. króna, þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 482 millj. króna. Afborganir langtímalána námu 525 millj. króna, handbært fé lækkaði um 62 millj. króna á árinu og nam það 12 millj. króna í árslok. Tekin ný langtímalán og skuldbreytingar voru að fjárhæð 1.011 millj. króna.
Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2014 samtals 5.617 millj. króna, þ.a. hjá A hluta 4.330 millj.króna. Langtímaskuldir námu alls 3.343 millj.króna hjá A og B hluta auk 697 millj.króna næsta árs afborgana. Eigið fé nam 1.687 millj. króna hjá samstæðunni í árslok og eiginfjárhlutfall 23%. Af þessari tölu nam eigið fé A hluta 1.153 millj. króna og eiginfjárhlutfall 21%. Lífeyrisskuldbindingar nema 950 millj.króna í árslok og hækkuðu á árinu um 70 millj.króna nettó vegna aukinna lífeyrisréttinda.
Í 64.gr. nýrra sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. megi ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Frá heildarskuldum og skuldbindingum er heimilt að draga frá hluta lífeyrisskuldbindinga sem og tekjur og skuldir veitna. Hjá Sveitarfélaginu Skagafirði er skuldahlutfall í ársreikningi fyrir árið 2014, 143% án þess að dreginn sé frá sá hluti af heildarskuldum og skuldbindingum sem heimilað er.
Lagðar voru fram þrjár bókanir um ársreikninginn, af þeim Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur, Bjarna Jónssyni og Stefáni Vagni Stefánssyni Bókanirnar er að finna í 19. lið fundargerðar sem er aðgengileg hér.