RIP Whitney Houston - Hollywoodhorn vikunnar
Aðalfrétt vikunnar er vafalaust andlát söngdívunnar Whitney Houston sem fannst látin á hótelherbergi í Beverly Hilton-hótelinu í gær. Hún var 48 ára gömul.
Whitney Houston vakti fyrst athygli á áttunda áratugnum og bar heimurinn miklar væntingar til þessarar ungu, fögru og einstaklega hæfileikaríku söngkonu.
Frægðarsól hennar stóð sem hæst þegar hún lék í kvikmyndinni “The Bodyguard” árið 1992 ásamt hjartaknúsararnum Kevin Costner en í tengslum við myndina gaf út lagið ódauðlega, “I will always love you”.
Sama ár, 1992, giftist hún rapparanum Bobby Brown og á sama tíma fór að halla undan fæti hjá söngkonunni. Hún glímdi við áfengis- og fíkniefnavanda svo árum skipti og fór ekki mikið fyrir henni á því tímabili.
Árið 2007 skildi hún við Bobby Brown eftir 15 ára hjónaband en saman áttu þau dótturina Bobbi Kristinu, fædd árið 1993. Eftir skilnaðin gerði Whitney tilraun til að taka sig saman í andlitinu, fór í meðferð og í kjölfarið gaf hún út plötu og fór í tónleikaferðalag.
Í fyrstu vakti endurkoma hennar Whitney mikla lukku en fljótlega fóru að heyrast sögur um að hún væri ekki verið að standa sig í tónleikaferðalaginu og oftar en ekki var hún púuð af sniðinu. Síðan heyrðust ekki margar fréttir af henni, fyrr en nú, þegar fréttir bárust af andláti hennar.
Hún fannst látin í baðkari hótelherbergi í Beverly Hills í gær og samkvæmt fréttamiðlum vestra voru tóm pilluglös á hótelherberginu. Hún er ekki fyrsta stjarnan sem hefur leiðst út í neyslu til að enda líf sitt á þennan hátt (sbr. Jim Morrisson fannst látinn í baðkari í París) og verður því miður líklega ekki sú síðasta.
Sviplegt andlát Whitney Houston hefur óneitanlega áhrif á Grammy-tónlistarhátíðina sem haldin verður í kvöld en hún hefur verið fastur gestur þar í gegnum árin og átti að mæta þangað í kvöld.
Hér er myndbandið við lagið “I will always love you” með Whitney Houston.
http://www.youtube.com/watch?v=CFQW0ELi8Ik