Rokktónleikar í Hofi

Karlakór Dalvíkur ásamt Matta Matt og rokkhljómsveit verða með rokktónleika í menningarhúsinu Hofi á Akureyri laugardaginn 26. mars nk. kl. 20:30. Talsmaður kórsins hvetur Skagfirðinga og Húnvetninga til að bregða sér yfir Öxnadalsheiðina og njóta skemmtilegra tónleika.

Flutt verða lög Bítlanna og Queen í rokkuðum útsetningum Guðmundar Óla Gunnarssonar stjórnanda kórsins.

Hljómsveitina skipa þeir Gunnlaugur Helgason á bassa, Hallgrímur Ingvason gítar, Halli Gulli trommur og Daníel Þorsteinsson píanó.

Miðasala fer fram á www.menningarhus.is

Fleiri fréttir