Rökkurganga í Glaumbæ í kvöld

Í tilefni Vetrarhátíðar í Skagafirði býður Byggðasafn Skagfirðinga til rökkurgöngu í gamla bæinn í Glaumbæ í kvöld, fimmtudagskvöld 21. febrúar. Gangan hefst stundvíslega kl. 18.

Gengið verður til baðstofu þar sem sagðar verða sögur sem tengjast Glaumbæ. Aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum ef fólk vill.

Fleiri fréttir