Róleg helgi hjá lögreglu – aukning á neyslu fíkniefna

Helgin hjá lögreglunni á Sauðárkróki var með rólegra móti. Feyki hefur borist til eyrna að umtalsverð aukning væri á fíkniefnaneyslu ungmenna á Fjölbrautaskólaaldri og þar rétt yfir og staðfesti lögregluþjónn á vakt að aukning væri í samfélaginu almennt.

"Við finnum fyrir aukninguí þjóðfélaginu almennt en það er erfitt að festa fingur á því hversu mikil hún er en við finnum þó klárlega fyrir aukinni neyslu.“

Fleiri fréttir