Röskun, Trukkarnir og Bergmál verða á Gærunni

Rammíslenskt þungarokk Röskunar, hljómsveitin Trukkarnir og stöllurnar í Bergmál verða á Gærunni tónlistarhátíð á Sauðárkróki 13. – 15. ágúst. „Röskun er fjögurra manna hljómsveit sem spilar kröftugt, melódískt og rammíslenskt þungarokk eins og það gerist best,“ segir í fréttatilkynningu.

https://youtu.be/RjthmoEVGnk

Upphaf Trukkana má rekja til þess þegar það vantaði hljómsveit til að spila á áramótaballi á Blönduósi.fyrir um tveimur árum síðan.

„Upp úr því hófst mjög skemmtilegt samstarf og hefur hljómsveitin aðallega verið að spila á sveitaböllum hér og þar um landið. Hljómsveitin hefur mest verið að spila cover lög á böllum en hefur undanfarið verið að vinna í frumsömdu efni. Trukkarnir fóru í hljóðver.is fyrir skömmu síðan og tóku upp nokkur lög og eru þau í þessum töluðu orðum í vinnslu.“

https://soundcloud.com/fridrikhalldor/dokk-og-drulluflott

 

Fyrir um ári síðan hófu þær Elísa og Selma að koma fram saman undir merkjum Bergmáls, öll lög eru frumsamin en áhersla er lögð á húmor og góðar sögur við textagerð. Elísa spilar á gítar og Selma á Cajun trommu og hristur.

„Það verður spennandi að heyra hvað þær stöllur bjóða okkur uppá á sólóistakvöldi Gærunnar í ágúst,“ segir loks í tilkynningu.

https://youtu.be/Bcd250csWB4

Gæruböndin sem búið var að kynna fyrir eru:

Amaba Dama​, Alchemia, Hemúllinn,
Lockerbie, VIO, Óskar Harðar,
Lára Rúnars, The Roulette, Axel Flóvent,
Dimma, Stafrænn Hákon,
Dalí, Bjartmar Guðlaugsson og Gillon.

Fleiri fréttir