Rósmundur gefur milljón
Rósmundur Ingvarsson kom við á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki í síðustu viku og afhenti henni að gjöf eina milljón króna.
Hafsteinn Sæmundsson veitti gjöfinni viðtöku og þakkaði Rósmundi kærlega fyrir höfðinglega gjöf og hlýhug til HS. Þessi góði styrkur frá Rósmundi mun nýtast stofnuninni mjög vel á erfiðum tímum.