Rúðubrot og umferðaróhöpp Úr dagbók lögreglu

Tveir karlmenn um tvítugt gengu um og brutu rúður í tveimur fyrirtækjum við Aðalgötu á Sauðárkróki aðfaranótt laugardag. Mennirnir höfðu verið við skemmtanahald þegar þeir urðu illa fyrirkallaðir og brutu tvær rúður. Lögregla kom á vettvang og færði mennina á lögreglustöðina og viðurkenndu þeir á sig verknaðinn og telst málið upplýst. Mönnunum var sleppt að lokinni skýrslutöku enda mesti móðurinn runninn af mönnunum.

Aðfaranótt laugardags var tilkynnt um bílveltu á Siglufjarðarvegi, tvennt var í bíllum og var ökumaður bifreiðarinnar fluttur á FSA til aðhlynningar. Ekki er þó talið að um alvarlega áverka hafi verið að ræða.

Á laugardaginn var tilkynnt til lögreglu um ofsaakstur bifreiðar á leið frá Akureyri í átt til Varmahlíðar. Stuttu seinna barst lögreglu önnur tilkynning þar sem sömu bifreið hafi verið ekið á vegrið á Öxnadalsheiði og að bifreiðin sé mikið skemmd eftir. Þrátt fyrir allt hélt ökumaður bifreiðarinnar áfram för sinni uns bifreið hans komst ekki lengra og stöðvaðist í Norðurárdal. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur.

Á laugardagskvöldið barst lögreglu tilkynning um að bifreið hafi farið út af á Siglufjarðarvegi skammt norðan Lambanes Reykja. Bifreiðin stöðvaðist í mýri neðan við veginn og sakaði ökumann bifreiðarinnar, sem var einn í bifreiðinni, ekkert

Fleiri fréttir