Rúnar Björn formaður Pírata í Reykjavík
Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, garðyrkjufræðingur og formaður NPA miðstöðvarinnar, var kjörinn formaður Pírata í Reykjavík á aðalfundi félagsins á dögunum. Rúnar Björn sem bjó á ungdómsárum sínum á Sauðárkróki slasaðist mikið er hann féll úr ljósastaur þar í bæ nýársdagsmorgun 2003.
Með Rúnari Birni í stjórn eru Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir sem er ritari félagsins, Björn Þór Jóhannesson gjaldkeri og Unnar Þór Sæmundsson. Elsa Nore hlaut kjör sem aðalmaður í stjórn en lækkaði sig um sæti og er nú fyrsti varamaður. Í staðinn kemur Árni Steingrímur Sigurðsson inn sem fimmti stjórnarmeðlimur.
„Það er ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu,“ segir Rúnar Björn sem hefur tekið þátt í starfi Pírata síðan flokkurinn náði fyrst fólki á þing árið 2013 og átti hann til að mynda sæti í síðustu stjórn Pírata í Reykjavík auk þess að hafa starfað innan Ungra Pírata.
„Ég hef tekið mikinn þátt í málefnastarfinu, unnið að mótun nokkurra stefna og gerði tvær sjálfur,“ segir hann. Önnur þeirra snýst um að einstaklingar sem vegna fötlunar sinnar hafi þörf fyrir notendastýrða persónulega aðstoð, NPA, og að þessi aðstoð sé lögfest eins fljótt og hægt er. Enn er bið á því þrátt fyrir yfirlýsingar forsvarsmanna ríkistjórnarflokka bæði fyrir og eftir kosningar. Rúnar lenti í alvarlegu slysi þegar hann var 21 árs, um áramótin þegar árið 2003 gekk í garð. Hann er með svokallað C5 heilkenni og nánast lamaður frá öxlum og niður. Rúnar var einn af þeim fyrstu sem fengu NPA eftir mikla baráttu sem er hvergi nærri lokið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.