Rúnar Már í U21

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert breytingu á landsliðshópnum fyrir leik Íslands og Aserbaídsjan. Leikurinn fer fram ytra þann 29. febrúar í undankeppni EM.  Rúnar Már Sigurjónsson úr Val kemur inn í hópinn í stað Eiðs Arons Sigurbjörnssonar sem er meiddur.

Rúnar Már er Sauðkrækingur og uppalinn í yngri flokkum Tindastóls en fór ungur á mála hjá HK árið 2007 en hefur verið síðustu ár hjá Val. Þar á bæ segja menn að Rúnar sé duglegur miðjumaður sem hefur staðið sig mjög vel og eigi sannarlega framtíðina fyrir sér.

Fleiri fréttir