Rústir Þingeyraklausturs rannsakaðar
Í sumar hefjast fræðilegar rannsóknir á Þingeyraklaustri, þar sem grafið verður í fornum rústum. Einnig stendur til að rannsaka vistfræði staðarins og nágrenni hans á miðöldum og gera athuganir á handritamenningu miðalda, í samstarfi við Snorrastofu í Reykholti í Borgarfirði.
Í vistfræðiþættinum verður horft til greininga á frjókornum og jarðvegi. Með því á að varpa ljósi á vistfræðilegar aðstæður í Húnaþingi á tíma klaustursins, sem rekið var frá 1133 til 1551, lengur en nokkurt annað á landinu. Leitað var til Þjóðminjasafnsins fyrir nokkrum árum um að koma rannsóknarverkefni á staðnum af stað og er það nú orðið að veruleika.