Rúta á bikarleikinn
Mikil stemning er á Króknum fyrir bikarúrslitaleiknum í körfubolta milli Tindastóls og Keflavíkur sem fram fer næsta laugardag í Laugardalshöllinni í Reykjavík „fyrir sunnan“. Miklar væntingar eru hjá stuðningsmönnum Stólanna um að bikarinn fari norður enda ætla þeir að fjölmenna í dalinn.
Boðið verður upp á rútuferð frá Króknum og leggur bíllinn af stað frá Skagfirðingabúð klukkan 9:30 á laugardag og heimferð eftir leik.
Kostnaði er haldið í algjöru lágmarki en aðeins kostar 1000 krónur á mann í rútuna.
Skráning fer fram hjá Jóni Inga í síma 825 4417.
Fyrir þá sem hugsa sér að dvelja lengur hefur Artic Comfort Hotel sem áður hét Hótel Vík ákveðið að bjóða helgartilboð í tilefni þessa áfanga. Þar er hægt að fá tveggja manna herbergi með morgunverði kr. 7900 í eina nótt, og tvær nætur á kr. 13.000.-
Á það má benda að á leiknum verða seldir stuðningsmannabolir sem vonast er til að fólk fái sér og klæðist á leiknum.