Sæluvika Skagafirðinga hefst á morgun

Sæluvika Skagfirðinga, ein elsta lista- og menningarhátíð landsins, verður formlega sett á morgun sunnudaginn 28. apríl kl. 14 í Safnahúsi Skagfirðinga, og stendur hún til 5. maí nk. Dagskráin er bæði metnaðarfull og glæsileg, segir á heimasíðu Svf. Skagafjarðar en meðal þeirra viðburða sem fara fram á Sæluviku eru ljósmyndasýningar, myndlistasýningar, leiksýningar, kvikmyndasýningar, dansleikir og að sjálfsögðu mun söngurinn skipa veglegan sess.

„Leikfélag Sauðárkróks sýnir að þessu sinni verkið Tifar tímans hjól sem er nýtt verk eftir Guðbrand Ægi Ásbjörnsson og Árna Gunnarsson og byggir á lögum eftir Geirmund Valtýsson sveiflukóng. Í Safnahúsinu verður yfirlit ljósmynda Kristjáns C. Magnússonar verslunarmanns af mannlífinu á Sauðárkróki frá um 1930-1965. Sönglög í Sæluviku, stórtónleikar með fjölda skagfirskra listamanna, verða flutt í Miðgarði en þar fer einnig fram árlegt kóramót Rökkurkórsins og Karlakórsins Heimis og að þessu sinni verða með þeim Skólakór Árskóla og Sellóhljómsveit St. Pétursborgar frá Rússlandi. Kirkjukvöldið verður á sínum stað í Sauðárkrókskirkju á mánudagskvöldinu í Sæluviku.

Af öðrum viðburðum má nefna frumsýningu nýrrar sjónvarpsmyndar eftir Árna Gunnarsson, stuttmyndasýningu og lifandi tónlist í Aðalgötu 26, opinn dag hjá Skotfélaginu Ósmanni, stórsýninguna Tekið til kostanna í reiðhöllinni Svaðastöðum, opið hús í Maddömukoti, fjölbreyttar kvikmyndasýningar, 1. maí hátíðarhöld, listahátíð barnanna, menningardagskrá í Sauðárkróksbakarí, Sæluvikumót í fótbolta, sýninguna Æskan og hesturinn, opnun upplýsinga-, fræðslu- og menningarmiðstöðvar í Gallerí Lafleur, opið hús hjá brugghúsinu Gæðingi í Útvík, fiskisælu í Ljósheimum, vortónleika Tónlistarskóla Skagafjarðar, myndlistarsýningu myndlistarfélagsins Sólons, sýningu á leikritinu Ástarsögu úr fjöllunum, o.fl. o.fl.

Það er því ljóst að allir eiga að finna fjölbreytta viðburði við sitt hæfi í dagskrá Sæluvikunnar. Gleðilega Sæluviku!,“ segir á Skagafjörður.is.

Hægt er að nálgast Sæluvikudagskrána HÉR

 

Fleiri fréttir