Sæmilegt á grásleppunni

Ekki hefur blásið byrlega undanfarna daga fyrir smábátasjómenn en nú stendur grásleppuvertíð sem hæst. Hingað til hafa grásleppusjómenn nær eingöngu komið með hrognin að landi en óvænt opnaðist markaður fyrir fiskinn til Asíu og verður skylda að koma með hann að landi á næstu vertíð.

-Það hefur gefið sæmilega. Það hefur verið einhver bræla en þetta gengur bara vel, sagði Þorleifur Ingólfsson er þeir feðgar hann og Guðmundur Haukur voru að landa vænum afla á Sauðárkrókshöfn fyrir helgi. Aðspurður hvort það væri mikið mál að koma með fiskinn að landi sagði Þorleifur það ekki vera. –Þetta er auðvitað aðeins meiri vinna en 55 krónur fæst fyrir fiskinn og það er aðeins upp í olíukostnað. Við erum komnir með eitthvað  á áttunda tonn.

Oft kemur meira í netin en grásleppan ein og þá er þorskurinn fyrirferðamikill og aðspurður segir Þorleifur að menn verði að eiga kvóta fyrir meðaflanum. –Við höfum átt kvóta í 30 ár, svo við erum í góðu lagi en aðrir sem ekki eiga kvóta verða bara að útvega sér hann.

Fleiri fréttir