Safna flöskum til styrktar Svíþjóðarferð
Í kvöld munu stúlkur úr þriðja flokki knattspyrnudeildar Tindastóls ganga í hús og safna flöskum og dósum til styrktar keppnisferðalagi sínu til Svíþjóðar. Þær ætla að taka þátt í Gothia cup sem er risastórt alþjóðlegt knattspyrnumót og fer fram í Gautaborg um miðjan júlí.
Þessi ferð hefur verið fastur liður í starfi þriðja flokks um árabil og fara stúlkur annað árið en drengir hitt. Í tilkynningu frá foreldraráði flokksins eru bæjarbúar hvattir til að taka vel á móti stúlkunum og styðja þær til ferðalagsins.
Í gær léku stúlkurnar sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu þetta tímabil, nú sem Tindastóll/Hvöt, á móti KR í á KR vellinum og sigruðu okkar stúlkur sannfærandi 4-1.