Safnadagurinn í Glaumbæ
Þriðjudaginn 18. maí síðastliðinn var haldið uppá alþjóðlega safnadaginn víðsvegar um allt land. Þema safnadagsins 2021 var; Framtíð safna, uppbygging og nýjar áherslur. Söfn voru hvött til að nota rafrænar lausnir við að miðla fróðleik og vera virk á samfélagsmiðlum.
Starfsmenn Byggðasafnsins í Glaumbæ tóku virkan þátt í safnadeginum og í tilefni hans var boðið uppá rafræna leiðsögn í um sýningarsvæðið og gamla bæinn.
Það eru þau Leifur Benedikt og Ylfa Leifs, safnverðir í Glaumbæ sem leiðsegja okkur um sýningarsvæðið í Glaumbæ í myndbrotunum hér að neðan.
/SMH