Saga Eurovision í Miðgarði 20. apríl

Tónleikasýningin Saga Eurovision er á ferð um landið og kemur við í Menningarhúsinu Miðgarði þann 20. apríl nk. Þar munu þau Friðrik Ómar, Selma Björnsdóttir og Regína Ósk rekja sögu Eurovisionkeppninnar allt frá árinu 1956 til dagsins í dag og víst er að hér er á ferðinni skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

„Öll eigum við skemmtilegar minningar tengdar Eurovision og munu þær eflaust koma upp í hugann þetta kvöld, þegar helstu perlur keppninnar verða fluttar af þeim Friðriki Ómari, Selmu Björnsdóttur og Regínu Ósk ásamt Eurobandinu. Þetta er viðburður sem aðdáendur Eurovision, á öllum aldri, mega ekki missa af,“ segir um tónleikasýninguna á Miði.is.

Hægt er að verða sér út um miða á Miða.is og er miðaverð 3.900 kr. fyrir fullorðna en 2.000 kr. fyrir börn yngri en 12 ára. Þess má geta að miða á barnaverði er ekki hægt að kaupa á vefnum midi.is, hægt er að hafa samband við skrifstofu midi.is í síma 540-9800 til að tryggja sér miða á barnaverði.

Fleiri fréttir