Saga skinnaverkunar rituð
Sigríður Sigurðardóttir forstöðumaður Byggðasafns Skagfirðinga kynnti á fundi menningar- og kynningarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar í gær, samstarf við Gestastofu sútarans á Sauðárkróki um ritun á sögu skinnaverkunar í hagleikssmiðju sem sett verður upp í Gestastofunni í sumar.
Eins og áður hefur verið sagt frá á mikil uppbygging sér stað í Gestastofu sútarans og á dögunum fékk gestastofan myndarlegan styrk frá sveitarfélaginu vegna þátttöku í evrópsku verkefni auk þess sem taka á aðkomu að stofunni í gegn og laga til í sumar.