Sameining Bæjarhrepps og Húnaþings vestra samþykkt í dag

Gengið var til kosninga um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþing vestra í eitt sveitarfélag og var niðurstaðan sú að hún var samþykkt með nokkrum yfirburðum. Sveitarfélögin hafa átt í samstarfi í mörgum málum sem hafa gengið vel fyrir sig.

 

  • Alls kusu 323 í Húnaþingi vestra
  • Já sögðu: 271 eða 83,9%
  • Nei sögðu: 50 eða 15,4%
  • Auðir og ógildir voru 2 eða 0.7%

 

  • Alls kusu 61 í Bæjarhreppi
  • Já sögðu: 39 eða 63,9%
  • Nei sögðu: 22 eða 36,1%
  • Auðir seðlar og ógildir voru 0

Bæjarhreppur er syðsta sveitarfélagið á Ströndum og nær frá Holtavörðuheiði í botni Hrútafjarðar að Stikuhálsi milli Hrútafjarðar og Bitrufjarðar í norðri. Íbúar sveitarfélagsins voru 100 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands þann 1. desember 2010.

Húnaþing vestra er sveitarfélag við Húnaflóa. Það var stofnað 7. júní 1998 við sameiningu 7 sveitarfélaga í Vestur- Húnavatnssýslu. Sveitarfélagið einkennist af fjörðunum þremur sem þar eru: Hrútafirði í vestri, Miðfirði og Húnafirði í austri. Íbúar sveitarfélagsins voru 1.120 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands þann 1. desember 2010.

HÉR er hægt að nálgast skýrslu sem KPMG gerði fyrir sameiningarnefnd Húnaþings vestra og Bæjarhrepps til að aðstoða við gerð greinargerðar og kynningar á fyrirhugaðri sameiningu sveitarfélaganna tveggja.

Fleiri fréttir