Sameining hestamannafélaganna samþykkt
Sameining hestamannafélaganna í Skagafirði var samþykkt á aukaaðalfundi sem haldinn var sl. mánudagskvöld. Að sögn Jónínu Stefánsdóttur formanns Stíganda var gott hljóð í fundarmönnum en þangað mættu 31 kosningabærir félagsmenn.
Sameiningin var samþykkt með 25 atkvæðum með sameiningu en fimm atkvæðum á móti. Einn var óákveðinn og skilaði auðu. Jónína segir næstu skref vera þau að nú setjast aðilar niður frá öllum hestamannafélögunum, tveir frá Léttfeta, tveir frá Stíganda og einn frá Svaða, og hefja undirbúningsvinnu að stofnun nýs félags.
„Þeir fara í það hlutverk að leggja drög að nýjum samningi og nýjum lögum, auglýst verður eftir nafni á nýju félagi og þess háttar. Þegar þeirri undirbúningsvinnu er lokið er áætlað að halda aðalfund fljótlega eftir áramót og þá verður kjörin stjórn,“ sagði Jónína um framhaldið í samtali við Feyki.