Samningar um NPA undirritaðir á Norðurlandi vestra

Byggðasamlag um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra auglýsti s.l. haust eftir þátttakendum í reynsluverkefni um svokallaða notendastýrða persónulega aðstoð NPA. NPA felst í því að fatlað fólk ráði sjálft það aðstoðarfólk sem það kýs að hafa í vinnu.

Gunnar Sandholt félagsmálastjóri í Skagafirði segir að verkefnið gangi út á það að aðstoðarfólk vinnur samkvæmt starfslýsingu sem fatlað fólk semur og samræmist lífstíl og kröfum viðkomandi.

-Markmiðið er að fatlað fólk geti lifað lífi sínu, haft sömu möguleika og ófatlað fólk og hámarks stjórn á hvernig aðstoðin er skipulögð og hönnuð eftir einstaklingsbundnum þörfum og lífsstíl hvers og eins.  Með því að gera samning um NPA fær notandi greiðslur í stað þjónustu, velur aðstoðarfólk, er verkstjórnandi, ákveður sjálfur hvað hann vill gera og hvernig aðstoðarfólk nýtist, segir Gunnar.

Nú hafa verið undirritaðir samningar hjá fjórum aðildarsveitarfélögum byggðasamlagsins,  fimm samningar í Skagafirði, tveir í Austur Húnavatnssýslu og einn í Dalvíkurbyggð um þetta fyrirkomulag á aðstoð. Verkefnið stendur út árið 2013 og var í sumum tilvikum komið í gang síðari hluta árs 2012. Gert er ráð fyrir að NPA verði lögbundin þjónusta árið 2014.

Á meðfylgjandi myndum má líta þá nafnana Gunnar Þórðarson safnstjóra í Stóragerði og Gunnar Sandholt undirrita samning um NPA. Steinunn Rósa, ráðgjafarþroskaþjálfi í Skagafirði fylgist glaðhlakkaleg með. Gunnar Sandholt segir að Sólveig í Stóragerði hafi verið upptekin við að bera smákökudunka á borð eins og sjá má og festist því ekki á filmunni.

Frekari upplýsingar um NPA má finna á www.skagafjordur.is

Fleiri fréttir