Samningar undirritaðir í kvennaboltanum
Síðastliðinn sunnudag var skrifað undir samning við 20 stúlkur sem munu keppa í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu fyrir Tindastól í sumar. Guðjón Örn Jóhannsson og Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir eru þjálfarar liðsins. Að sögn Guðjóns hefst keppni laugardaginn 18 maí, á útivelli í leik gegn Fylki, sem fyrirfram er talið sigurstranglegasta liðið í deildinni.