Samningar undirritaðir við styrktaraðila

Í dag fór fram undirritun samninga við styrktaraðila að Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður á Hvammstanga dagana 24.-26. júní. Undirritunin fór fram í Þjónustumiðstöð UMFÍ við Sigtún í Reykjavík. Styrktaraðilar mótsins eru Menningar- og menntamálaráðuneytið, Eirberg, VÍS, Frumherji, Lyfja, Lottó og Getraunir, Sláturhús KVH ehf., Mjólkursamsalan, Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfélag Vestur Húnvetninga.

Mótið er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og sýningahópar. Allir, jafnt ungir sem eldri, eiga að finna eitthvað við sitt hæfi þessa helgi sem mótið fer fram. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennafélags Íslands og USVH í samstarfi við sveitarfélagið Húnaþing vestra. Aðrir samstarfsaðilar að mótinu eru Félag áhuga fólks um íþróttir aldraðra og Landssamband eldri borgara.

Keppnisgreinar á mótinu: Blak, Bridds, Boccia, Badminton, Frjálsar íþróttir, Fjallaskokk, Hestaíþróttir, Golf, Pútt, Línudans, Skák, Sund, þríþraut. Öll aðstaða á Hvammstanga er til fyrirmyndar en það skal sérstaklega tekið fram að aðgangur að tjaldsvæðinu í Kirkjuhvammi er ókeypis sem og öll afþreying á mótinu.

Fleiri fréttir