Samningur milli Golfklúbbs Sauðárkróks og sveitarfélagsins

Tillaga að nýjum samningum við Golfklúbb Sauðárkróks til 10 ára var lögð fram á fundi Félags- og tómstundanefndar Svf. Skagafjarðar sl. miðvikudag. Um er að ræða annars vegar samning um slátt á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki og hins vegar samning um rekstur og uppbyggingu golfsvæðisins.

Í fundargerð nefndarinnar kemur fram að nefndin hafi samþykkt samningana fyrir sitt leyti og vísað þeim til byggðarráðs.

Fleiri fréttir