Samningur um reiðvegi
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
27.04.2016
kl. 09.04
Ásta Pálmadóttir, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Guðmundur Sveinsson, formaður hestamannafélagsins Skagfirðings, undirrituðu samning um reiðvegagerð í fyrradag. Mynd: Skagfirðingur.
Í fyrradag var stór stund hjá hinu nýstofnaða hestamannafélagi Skagfirðingi. Formaður þess, Guðmundur Sveinsson, og sveitarstjóri Skagafjarðar, Ásta Pálmadóttir, undirrituðu samning um uppbyggingu og viðhald reiðvega í sveitarfélaginu.
Samningurinn er til fimm ára og leggur sveitarfélagið til 3.500.000 kr. á ári alls 17.500.000 kr. Skagfirðingur þakkar sveitarfélaginu rausnarlegan stuðning.
