Samstaða á Norðurlandi vestra

Ágæt samvinna hefur verið meðal sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra um að standa vörð um opinber störf og atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Oft hefur verið við ramman reip að draga síðustu árin, en opinber fjárframlög, m.a. til menningarstarfs og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, hafa dregist mjög saman. Það sama á við um störf á vegum ríkisins í landshlutanum, en í Skagafirði hefur ríkisstörfum fækkað um 50 til 60 frá árinu 2008. Sú hefur orðið raunin þrátt fyrir að ráðherrar hafi gefið þær yfirlýsingar fyrir síðustu kosningar að þeim landshlutum yrði sérstaklega hlíft sem fóru varhluta af þenslunni og „góðærisgleðinni“ fyrir hrunið.

Afleiðingar hins blóðuga niðurskurðar má nú sjá með beinum hætti í íbúaþróun Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Nú berast þau tíðindi að sýslumannsembættið á Sauðárkróki verði lagt niður, þrátt fyrir að innanríkisráðherra hafi gefið það í skyn að til þess myndi ekki koma! Ef að sýslumannsembættið verður lagt niður, er nokkuð ljóst að það verður ekki það síðasta sem verður fyrir barðinu á niðurskurði yfirvalda, sem beinast einkum að Norðurlandi vestra. Ekki er hægt að búast við því að sá niðurskurður verði bundinn eingöngu við störf í Skagafirði. Lamandi áhrifa gætir útfyrir þá starfsemi, sem er undir niðurskurðarhnífnum hverju sinni, þar sem ráðamenn gefa stöðugt í skyn enn frekari niðurskurð og aflagningu heilu stofnananna – Enginn veit hver verður næstur.

Nú ríður á að sveitarstjórnir á Norðurlandi vestra standi saman sem aldrei fyrr gegn því að gengið verði frekar á lágmarksþjónustu við íbúa svæðisins. Niðurskurður umliðinna ára í Skagafirði hefur verið umtalsvert meiri en önnur samfélög af sömu stærðargráðu hafa mátt þola. Hingað og ekki lengra og það fyrir löngu!

Nú er tímabært að sveitarstjórnarmenn á Norðurlandi vestra beiti sér af alefli gegn þessari niðurskurðarvá og veki athygli þingmanna á að nú hafi þegar verið gengið allt of langt. Sveitarfélögin á Norðurlandi vestra hafa nýverið staðið saman um mjög mikilvæg áhersluverkefni, sem hafa jafnað lífsgæði á svæðinu. Má þar nefna hitaveituframkvæmdir á Skagaströnd og dreifnámsverkefni á Hvammstanga. Mikilvægt er að góðir grannar snúi bökum saman og sýni samstöðu í verki.

Sigurjón Þórðarson
Sveitarstjórnarfulltrúi í Skagafirði

Fleiri fréttir