Samstarfsverkefni sveitarfélaganna í Óðinsvéum og Skagafirði
Síðastliðið haust fengu sveitarfélag Óðinsvéa og Sveitarfélagsins Skagafjarðar úthlutað styrk úr sjóði Menntaáætlunar Evrópusambandsins til Comenius Regio samstarfsverkefnis.
Verkefnið snýr að skólaskilum á milli leik – og grunnskóla. Tveir leik – og tveir grunnskólar í Skagafirði taka þátt í verkefninu, Ársalir, Birkilundur, Árskóli og Varmahlíðarskóli. Sami fjöldi skóla tekur þátt í verkefninu í Óðinsvéum. Stýrihópur verkefnisins fundaði nú í vikunni í Skagafirði. Hingað komu þrír starfsmenn háskólans Lillebælt og tveir starfsmenn frá fræðsluþjónustu Óðinsvéa.
Þátttökuskólarnir hér voru allir sóttir heim. M.a. voru gestirnir viðstaddir skólaslit í Varmahlíðarskóla, skoðuðu nýbyggingu Árskóla og fylgdust með starfi í Ársölum og Birkilundi. Anna Steinunn Friðriksdóttir, deildarstjóri í Árskóla, flutti erindi um skóla án aðgreiningar fyrir stýrihópinn og þótti gestunum afar áhugavert að heyra um og sjá hvernig skólarnir hér vinna samkæmt þeirri hugmyndafræði. Gestirnir fóru einnig í skoðunarferðir um fjörðinn á milli þess sem fundað var um verkefnið og drög lögð að verkefnum næsta skólaárs.
Í maí á næsta ári mun lokaráðstefna verkefnisins fara fram hér í Skagafirði þar sem tveir þátttakendur úr hverjum skóla, bæði frá Skagafirði og jafnmörgum skólum frá Óðinsvéum, auk stýrihópsins munu taka þátt.