Samþykktir um búfjárhald í Húnaþingi vestra

Landbúnaðarráð Húnaþings vestra hefur unnið að gerð Samþykktar um búfjárhald í Húnaþingi vestra á síðustu vikum. Á fundi nefndarinnar þann 18. apríl sl. var samþykkt að senda drög að Samþykktinni til fjallskilastjórna í sveitarfélaginu til umsagnar og jafnframt verði íbúum sveitarfélagsins gefinn kostur á að gera athugasemdir við þau drög.

Á heimasíðu Sveitarfélagsins segir að athugasemdir þurfa að berast skriflega og skuli senda þær til skrifstofu Húnaþings vestra fyrir 30. apríl nk.

Drög að samþykktinni má finna hér.

Fleiri fréttir