,,Sárakremið gjörbreytti húðinni minni"
Úrsúla Ósk Lindudóttir er 19 ára gömul og býr í Reykjavík þar sem hún vinnur á elliheimilinu Grund. Hún stefnir á að flytja aftur á Sauðárkrók í ágúst til að fara á hestabraut og einbeita sér að því.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál eru vinir, hestamennskan og ég hef líka virkilega gaman af tónlist og íþróttum, svo auðvitað förðun.
Hver er þín daglega förðunarrútína?
1. Ég byrja yfirleitt á að setja á mig matt Foundation „Tender“ frá Makeup Store.
2. Svo set ég á mig Total Finish „Soft Beige“ púður frá Sensai.
3. Mér finnst rosalega gaman að ýkja kinnbeinin aðeins og í það nota ég matt sólarpúður frá Body Shop.
4. Næst set ég Exotic Ember Blush frá MAC.
5. Ég nota Eyebrow Colour Pen 6 frá Art Deco í augabrúnirnar, en set svo grábrúnan augnskugga fremst til að fá þær náttúrulegri.
6. Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá er ég algjört eyeliner frík! Ég held að ég gæti ekki verið án eyeliners, en ég nota Super Liner Ultra Precision frá Loréal.
7. Þá er næst maskari, og ég nota Great Lash frá Maybelline, ódýr og fínn!
8. Svo set ég varalit. Heroine varaliturinn frá MAC er ég mjög dugleg að nota, og líka VivaGlam II.
Hver er þín uppáhalds förðunarvara?
Exotic Ember kinnalitur/sólarpúður frá MAC og varalitur!
Hvenær byrjaðir þú að farða þig?
Alltof ung, örugglega í 6. bekk....
Hvað er þitt versta „förðunarslys“?
Mér finnst ekkert meira vandræðalegt þegar ég mála mig í vitlausu ljósi og fer svo geðveikt sátt út og er eins og einhver trúður í andlitinu...það er mest pirrandi.
En svona almennt, hver eru þá algeng „förðunarslys“ að þínu mati?
Augabrúnir algjörlega! En kannski er það bara mismunandi hvernig fólk vill hafa augabrúnirnar sínar. En illa valin vörusamsetning finnst mér vera pínu mistök, til dæmis alltof ljóst púður eða alltof dökkt og allt einhvernvegin í klessu, og svo kannski bara grænn varalitur með skærbleikum kinnalit.
Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?
Ég hef alltaf verið með slæma húð og hef þurft að fara í lyfjameðferð, en þegar ég byrjaði að nota sárakremið þá gjörbreyttist húðin.
Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?
Ég væri alveg til í að vera með förðunarfræðinginn hennar Kylie Jenner sem minn eigin! En annars hefur Carli Bybel allaf verið youtube search‘ið mitt þegar ég ætla að athuga með einhverjar flottar farðanir.
Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?
Úff ég veit það ekki, snyrtitöskuna hjá MAC væri alveg fínt!