Sauðárkróksvöllur sennilega úr leik út júní

Góðir gestir heimsóttu Sauðárkróksvöll í gær en þá mættu fulltrúar frá KSÍ og sérfræðingar um knattspyrnuvelli til að skoða völlinn sem svo sannarlega hefur munað sinn fífil fegurri.  Gestirnir tóku sýni og veltu hlutunum fyrir sér ásamt starfsmönnum sveitarfélagsins og fulltrúum knattspyrnudeildar Tindastóls.

Að sögn Ómars Braga Stefánssonar var niðurstaðan í sjálfu sér alls ekki góð.  -Þeir sögðu okkur þó að vera bjartsýnum því þetta gæti alls ekki versnað, svo slæmt er þetta.  Þeir leggja til ákveðið aðgerðaplan og segja að ef allt gangi upp þá gætum við hugsanlega leikið á vellinum undir lok júnímánaðar, hugsanlega einhverjum dögum fyrr en best sé að biðja til Guðs.

Fleiri fréttir