Sauðburður að hausti

Nú er sá tími kominn að smalað er út um allar koppagrundir og sauðfé sótt á fjöll og sláturtíð í vændum. Því kom það smölunum, Sveini á Lýtingsstöðum og Björk á Korná í opna skjöldu er þau sáu kind vera að bera í gær.
Þau Sveinn og Björk voru í smalamennsku á Korná í fyrrum Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði í gær og komu að kind sem var búin að bera einu lambi og hitt var rétt ókomið í heiminn. Var henni veitt sú fæðingarhjálp sem til þurfti og eigandinn tveimur lömbum ríkari. Að sögn Bjarkar lét þessi ær tveimur lömbum í febrúar sl. en hefur síðar komist á hrútafund með þeim árangri að bera tveimur hrútlömbum í gær.