Sauðfjárbændur gera sér dagamun

Félag sauðfjárbænda í Skagafirði  ætla að fagna uppskeru ársins og halda árshátíð í Ketilási þann 5. nóvember nk. þrátt fyrir áföll í sauðfjárræktinni. Mikið verður lagt í veisluna og skráning hafin, en það er einn hængur á.

Í Sjónhorninu, sem kemur út í dag, er veislan auglýst.   Maturinn eldaður af Greifanum á Akureyri, Stulli og Finnur ætla að sjá um músíkina og Fljótamenn bjóða upp á fordrykk.

Skráning í gleðina stendur til þriðjudagsins 1. nóvember en í auglýsingunni gleymdist hins vegar að geta hvar ætti að skrá sig. Það mun hins vegar vera hjá Jóni á Þrasastöðum í síma 863 4410,  Merete á Hrauni 8470575  og í Facebookskilaboðum hjá Ástþóri í Miðdal

 

Bændur eru hvattir til að mæta, gera sér dagamun þrátt fyrir áföll í sauðfjárræktinni. 

Fleiri fréttir