Sauðfjárræktarsamningurinn verstur fyrir jaðarbyggðir

Mikil óánægja er meðal sauðfjárbænda í Húnaþingi vestra, á Ströndum og Vestfjörðum með búvörusamninginn sem nú liggur fyrir til staðfestingar. Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins hefur áætlað með samningnum verði tekjur sauðfjárbænda á Ströndum og í Ísafjarðarsýslum skertar um 20 prósent. RÚV.is greinir frá.
Samkvæmt frétt RÚV. is segja sauðfjárbændur að með samningnum sé fé dregið frá þeim bændum sem hafa sauðfjárrækt sem aðalbúgrein og fært til hinna sem hafa minni sauðfjárbú, oftast sem hliðargrein með öðrum landbúnaði, svo sem kúabúskap.
Rætt er við Jóhann Ragnarsson, sauðfjárbónda í Laxárdal III við Hrútafjörð, en hann staðfestir að megn óánægja sé ríkjandi og kveðst raunar engan bónda þekkja í Strandasýslu, sem ætli að greiða atkvæði með samningnum. Hann segir að samningurinn sé verstur fyrir jaðarbyggðir og segist ekki skilja hvernig samningurinn eins og hann liggur nú fyrir geti styrkt þær byggðir eins og yfirlýst markmið er. Þá segir hann að ekki verði heldur séð hvernig samningurinn stuðli að nýliðun í greininni sem, sem er þó yfirlýst markmið.
Með samningnum sé jafnframt verið að færa fjármuni frá þeim bændum sem hafi fjárfest í greiðslumarki undanfarin ár. Þetta bitni verst á Vestfjörðum, Ströndum, Húnavatnssýslum og Norður Þingeyjarsýslum.
Loks segir í frétt RÚV að í sameiginlegri ályktun sauðfjárræktarfélaga á Vestfjörðum og Ströndum segir að afleiðingin verði sú að stuðningurinn færist frá byggðum þar sem sauðfjárrækt er stunduð sem aðalbúgrein til suðvesturhornsins. Þar sé sauðfjárræktin í mun meiri mæli aukabúgrein. Frá umhverfislegu tilliti sé þetta einnig slæmt, samningurinn hvetji til aukningar framleiðslu á svæðum þar sem land er hvað viðkvæmast fyrir beit.