Sauðfjárslátrun lokið á Hvammstanga
Nú er sauðfjárslátrun lokið þetta haustið á Hvammstanga en henni lauk í gær. Aldrei fyrr hefur jafn miklu fé verið slátrað og í haust, en heildarslátrun er komin í 87.367 fjár. Þetta var sjötta haustslátrun Sláturhúss KVH ehf og hef verið fjölgun öll þessi sex haust.
Meðalviktin endaði í 16,2 kg sem er tíu grömmum lakari en í fyrra þar sem hún var 16,3 kg. Boðið verður upp á tvo sláturdaga í nóvember og desember þar sem bændur geta komið með það sem eftir hefur orðið. Þeir dagar verða auglýstir fljótlega
Að sögn Magnúsar Freys Jónssonar sláturhússtjóra voru alls 126 manns á launaskrá í sauðfjárslátruninni en nú tekur við hrossa- og folaldaslátrun fram að áramótum en auk þess verður nautgripum slátrað vikulega.