Seiðandi Smokey skref fyrir skref!

Fröken Fabjúlöss veit fátt skemmtilegra en að mála sig og oft hefur túttan verið með það á prjónunum að gera svona skref fyrir skref myndaseríu. Það vill bara svo óheppilega til að förðunargjörningur fer fram þegar dívan er nývöknuð og það er ekki fyrr en kaffibollinn kikkar inn sem hún man eftir þessari fyrirætlan sinni. Þá er hún venjulega komin á skref 4 eða lengra í förðuninni og þá er vita gagnslaust að ætla að fara að byrja á myndatökum.

En svo gerðist það að í morgun var kella öll hin sprækasta og mundi eftir þessu í tæka tíð og hér fyrir neðan fáið þið augum að líta herlegheitin sem áttu sér stað við snyrtiborð Fröken Fabjúlöss í þennann daginn!

 

Skref 1
Too Faced Shadow Insurance primer borinn á augnlokin. Á globuslínuna notaði Frökenin svo ótrúlega fallegann augnskugga frá Make Up Store en svo illa vildi til að miðinn var farinn af umbúðunum þannig að ekki séns er að vita hvað kvekendeð heitir! En hér er mynd af honum:

Skref 2
Mjög ljósbleikur augnskuggi frá Make Up Store sem heitir Penny Lane borinn á augnlokið, og ótrúlega flottur svartur skuggi með gullglimmerögnum sem heitir Jubilee borinn í innri og ytri augnkrók.

Skref 3
Með smá af brúnum augnskugga í burstanum, Choco D'or frá Make Up Store, blanda vel svarta litinn og blanda svo fram og til baka yfir globuslínu til að tengja skuggann

Skref 4
Setja svartann augnblýant í vatnslínuna, Fabjúlöss notaði Smolder frá MAC. Nota Choco D'or og sama bursta og sést á myndinni hérna fyrir ofan og blanda augnblýantinn út þannig að skuggi verði fyrir neðan augað. Setja svo gylltann augnskugga á miðju augnloks, Frökenin notaði Goldilux frá Sugarpill.

Skref 5
Blanda Goldilux vel yfir augnlokið!

Því næst að setja maskara á augnhárin og þá eru glamúrheitin í algjöru fyrirrúmi!

Fröken Fabjúlöss óskar ykkur glamúrs og glimmers!

 

 

Fleiri fréttir