Selasetur Íslands flytur sig um set.

Selasetur Íslands hefur verið til húsa að Brekkugötu 2 síðan það komst á laggirnar árið 2005. En nú er verið að vinna að flutningi þess í stærra og aðgengilegra húsnæði, gamla gærukjallarann þar sem nytjamarkaðurinn hefur verið til húsa undanfarinn ár.

Á efri hæð hússins þar sem frystirinn fyrir gamla sláturhúsið var er svo verið að saga tvö göt á suðurvegginn þar sem setja á glugga fyrir geymslu sem KVH er að útbúa þar.

/ hvt.123.is

Fleiri fréttir