Selatalningin mikla 2011

Síðan árið 2007 hefur árleg selatalning á Vatnsnesi og síðar á Heggstaðarnesi verið framkvæmd á vegum Selasetursins á Hvammstanga, og í sumar fer hún fram sunnudaginn 17. júlí. Selatalningin byggir algjörlega á þátttöku sjálfboðaliða og hefur áhuginn hingað til verið mikill, bæði meðal heimamanna og ferðamanna.

Í upphafi voru einungis taldir selir á Vatnsnesinu en þar sem áhugi og þátttaka hefur aukist á milli ára hefur frá árinu 2009 allt Heggstaðarnesið verið talið líka. Svæðið sem talið verður á nú er um 100 km langt, en er skipt í mörg misstór svæði en öll talin á sama tíma.

Flestir ættu að geta fundið sér svæði við sitt hæfi, hvort sem um fjölskyldufólk í leit að léttri göngu í fjörunni er að ræða eða íþróttagarpar að leita að erfiðri gönguferð. Stystu svæðin verða u.þ.b. 2 km löng og þau lengstu um 7 km.

Selsetrið hvetur heimamenn sem aðkomumenn að taka þátt í Selatalningunni miklu en nauðsynlegt er að skrá þátttöku fyrirfram, annað hvort með því að senda tölvupóst á rannsoknir@selasetur.is,  eða með því að hringja í síma 451-2345.

Fleiri fréttir