Selfyssingar með sanngjarnan sigur

Tindastóll mætti liði Selfoss á laugardaginn í 1. deild karla í knattspyrnu. Ekki gekk Stólunum nógu vel í leiknum og máttu lúta í lægra haldi, töpuðu 1-0.

Leikurinn var jafn framan af en heimamenn náðu yfirhöndinni þegar líða tók á fyrri hálfleik og komust yfir á 41. mínútu þegar dæmt var víti á Sigurð Hrannars markvörð Tindastóls eftir að kappinn hafði kýlt leikmann Selfoss í stað boltans. Úr vítinu skoraði Joseph Yoffe og staðan 1-0 í leikhléi.

Heimamenn sóttu meira í síðari hálfleik og sköpuðu sér nokkur ágæt færi. Þeir hefðu átt að bæta við marki um miðjan hálfleikinn en Ingvi Hrannar kom Stólunum til bjargar. Tindastólsmenn sóttu á skyndisóknum en gekk illa að skapa sér færi og fengu í raun sitt fyrsta dauðafæri í leiknum í uppbótartíma þegar Elvar Páll Sigurðsson skaut yfir af markteig eftir að boltinn barst til hans eftir þvögu í vítateignum.

„Ég er svekktur með úrslitin og okkar spilamennsku í leiknum,“ sagði Donni þjálfari í samtali við Fótbolti.net að leik loknum. „Við sköpuðum okkur ágætis stöður af og til en það er áhyggjuefni að við sköpuðum okkur of fá færi. Við vorum ekki að koma okkur í þær stöður sem við vildum koma okkur í fyrir leikinn.“

Lið Tindastóls er í áttunda sæti 1. deildar að fimm umferðum loknum og þurfa að komast á beinu brautina eftir tvo tapleiki í röð. Liðið hefur að sjálfsögðu enn ekki spilað á heimavelli (ef undan er skilinn heimaleikur í Boganum gegn Húsvíkingum) en næsti leikur er samkvæmt leikjaplani við Fjölni hér heima á föstudaginn.

Fleiri fréttir