Sérútbúinn neyðarbúnaður til að hafa í dreifbýli
Skagafjarðardeild Rauða kross Íslands ætlar að auka við og bæta þann búnað sem vettvangsliðar deildarinnar hafa og afhenda þeim Karli Lúðvíkssyni í Varmahlíð og Steini Leó Rögnvaldssyni á Hrauni, hjartastuðtæki, en þeir luku á síðasta ári First Responder námskeiði á vegum Sjúkraflutningaskólans.
Þetta gerir stjórn deildarinnar í tilefni 112 dagsins og fer afhendingin fram í húsnæði deildarinnar, Aðalgötu 10b á Sauðárkróki kl. 15 en hjartastuðtækið verður svo í öruggum höndum þeirra Steins og Karls úti á Skaga og í framsveitum Skagafjarðar.