Sex slösuðust í bílveltu á Þverárfjallsvegi

Sagt er frá því á mbl.is að sex slösuðust í bílveltu á Þverárfjallsvegi í morgun. Voru þeir fluttir á Sjúkrahúsið á Akureyri en ekki er talið að meiðsl þeirra séu alvarleg.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi voru mennirnir, sem allir voru saman í bíl sem tekur sjö í sæti, að koma frá Sauðárkróki en talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri. Ekki er grunur um að ökumaðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis, að sögn lögreglu.

Sexmenningarnir voru allir fluttir til Akureyrar með sjúkrabifreiðum en einhverjir þeirra voru fyrst fluttir til skoðunar á Blönduós. Þaðan voru þeir síðan fluttir til Akureyrar.

Fleiri fréttir