Síðasti heimaleikurinn í kvöld

Tindastóll leikur síðasta heimaleik sinn í Iceland Express deildinni í kvöld, þegar strákarnir taka á móti liði Keflavíkur. Enn er fræðilegur möguleiki á sæti í úrslitakeppninni, en til þess þurfa úrslit í öðrum leikjum að vera hagstæð okkar mönnum.

Tapi Njarðvíkingar síðasta leiknum sínum og Tindastóll vinnur sína báða, lendir Tindastóll fyrir ofan þá grænu og komast þar með inn í úrslitakeppnina. Síðasti leikur Tindastóls í deildinni verður einmitt úti gegn Njarðvíkingum. Njarðvík tapaði fyrir KFÍ í gærkvöldi og sigri Tindastóll í kvöld, verður leikur liðanna á fimmtudaginn hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitakeppninni.
 
Haukarnir geta líka komið inn í þessa breytu, ef þeir tapa báðum leikjum sínum og Njarðvík tapar fyrir Tindastóli, kemst Njarðvík samt áfram þar sem þeir eru ofar Haukunum að stigum nú þegar.
Tindastólsstrákarnir vilja kveðja stuðningsmenn á heimavelli með góðum leik í kvöld og ætla að selja sig dýrt. Lið Keflvíkinga er ekki ósigrandi og á heimavelli getur allt gerst með góðum stuðningi áhorfenda.
Leikurinn hefst á hinum klassíska tíma kl. 19.15 og fyrir þá sem ekki komast á leikinn, verður hann sýndur beint í Tindastóll-TV sem vakið hefur verðskuldaða athygli í vetur.

Fleiri fréttir