Siðfræði og hlutverk háskóla til umræðu á Degi Guðmundar góða
Dagur Guðmundar góða var haldinn hátíðlegur á Hólum þann 16. mars sl. en þá var m.a. haldin málstofa í Auðunarstofu þar sem Páll Skúlason prófessor flutti erindi en að því loknu var veittur styrkur úr Áheitasjóði Guðmundar biskups góða. Dagskránni lauk svo með tónleikum í dómkirkjunni þar sem Magnea Tómasdóttir sópran og Guðmundur Sigurðsson organisti fluttu Passíusálmalög í útsetningu Smára Ólasonar.
Í málstofunni í Auðunarstofu flutti Páll Skúlason prófessor erindi sem hann nefndi Siðfræði og hlutverk háskóla. Á heimasíðu Hólaskóla segir að í fyrirlestrinum hafi Páll lagt út af yfirlýsingu margra rektora sem undirrituð var í Bologna árið 1988 og kallast hún MAGNA CHARTA UNIVERSITATUM, hana má sjá hér. Erindi Páls Skúlasonar var tekið upp í heild sinni og birt á heimsíðu Hólaskóla.
Fjölmargir tóku þátt í umræðum í málþinginu og að því loknu var sem fyrr segir veittur styrkur úr Áheitasjóði Guðmundar biskups góða sem er í vörslu Hóladómkirkju. Það var velferðarsjóðurinn Von í Norður-Þingeyjarsýslu sem hlaut styrkinn að þessu sinni sem hljóðaði upp á 300.000 kr.