Síðustu forvöð að sjá Fullkomið brúðkaup
Nú eru síðustu forvöð að sjá Sæluvikusýningu Leikfélags Sauðárkróks, fullkomið brúðkaup. Aðsókn hefur verið með ágætum og góður rómur gerður að sýningunni, að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur, formanns Leikfélagsins.
Tólfta sýning verður á morgun, laugardag, klukkan 15 og þrettánda og síðasta sýningin á sunnudaginn klukkan 20. Miðasala er í síma 849 9434.