Síðustu forvöð að skrá í Sumartím í dag og morgun
Ákveðið hefur verið að opna fyrir skráningu í Sumar tím fram að hádegi á morgun og eru þeir sem enn eiga eftir að skrá börn sín í íþróttir og tómstundir í Skagafirði hvattir til að nýta þetta tækifæri. Þetta á einnig við um þau börn sem eru aðeins í einni íþróttagrein.
Á heimasíðu Svf. Skagafjarðar segir að líkt greint hefur verið frá áður hefur íþróttahreyfingin óskað eftir því að Sveitarfélagið annist innheimtu æfingagjalda allra barna og því er mjög brýnt að foreldrar skrái börn sín í gegnum skráningarkerfi T.Í.M. Slóðin er tim.skagafjordur.is og er síðasti skráningardagur miðvikudagurinn 1. júní til hádegis.