Síðustu forvöð að skrá sig í Hæfileikakeppni Íslands
Nú eru fjórir dagar þangað til Hæfileikakeppni Íslands lokar fyrir þátttökuskráningar en keppnin snýst um að þátttakendur komi með atriði sem sýnir hæfileika þeirra á hvaða sviði sem er. Leitað er eftir eftirhermum, dönsurum, söngvurum, töframönnum og hreinlega öllu sem hugsast getur. Meðal innsendra atriða má finna Sylvíu Dögg Gunnarsdóttur frá Sauðárkróki.
Sylvía sagðist ekki vera komin áfram í keppninni þar sem fólk hefur enn tíma til að skrá sig.
-En ætli sé ekki best að segja sem minnst um þetta hæfileikaríka atriði hjá mér, þar sem vinkonur mínar voru aðeins að gera lítið úr mér sem GÆS. Ætli ég láti það ekki eiga sig að fara í alvöru keppnina, sagði Sylvía.
Atriði Sylvíu má finna HÉR.