„Síðustu tvö ár hafa verið ótrúleg"

N4 er norðlensk sjónvarpsstöð sem mörgum finnst ómissandi. Nú á dögunum voru ráðnir nýir framkvæmdastjórar stöðvarinnar og önnur þeirra er Skagfirðingum að góðu kunn en hún heitir María Björk Ingvadóttir. Hún er fædd og uppalin á Akureyri og er dóttir þeirra Ingva Rafns Jóhannssonar og Sólveigar Jónsdóttur.

Hlutverk Maríu hefur breyst á stuttum tíma, en hún var ráðin til N4 til að ritstýra þættinum Að norðan.  „Eitt mitt fyrsta verk var að stækka svæðið með reglubundinni umfjöllun um allt Norðurland, líka Norðurland vestra. Ég mun halda áfram að fjalla um líf fólks á Norðurlandi vestra auk þess að grípa inn í verkefni á Norðurlandi eystra einnig en sem annar framkvæmdastjóranna þarf ég auðvitað að takast á við miklu fleiri verkefni tengd rekstri og framtíðarsýn og skipulagningu, sem mér finnst spennandi.“

María Björk neitar því ekki að það er talsvert langt fyrir hana að sækja vinnu , stundum daglega 240 kílómetra. ,,Vinkona mín , Öxnadalsheiðin, var ekki alltaf auðveld í samskiptum síðasta vetur en ég held að næsti vetur verði auðveldari.  Það er svo miklu auðveldara að lifa lífinu ef maður fyllir ferðatöskurnar sínar af jákvæðni, bjartsýni og góðum minningum,“ segir María Björk.
María Björk er í opnuviðtali Feykis sem kemur út í dag.

Fleiri fréttir