Sigling og sjávarsæla á Sjómannadaginn-myndir
Eins og fram kom í síðasta tölublaði Feykis tók ný nefnd við skipulagningu Sjómanndagsins í ár og var markmið hennar að endurvekja þá stemmingu sem nefndarmenn þekktu frá Sjómannadeginum úr barnæsku sinni. Ákveðið var að flytja skemmtunina aftur yfir á bryggjuna. Þar var mikið um að vera á laugardaginn og ekki varð annað séð en að vel hefði tekist til.
Meðfylgjandi myndir eru reyndar flestar teknar í siglingu með Málmey en nokkrar af bryggjunni og frá Sjómannadagskaffi Slysavarnardeildarinnar. Í næsta tölublaði Feykis munu svo birtast nokkrar myndir frá hátíðarhöldum á Norðurlandi vestra á Sjómannadaginn.
.