Siglufjarðarvegur lokaður vegna skriðufalla
feykir.is
Skagafjörður
29.08.2015
kl. 20.13
Siglufjarðarvegur er lokaður vestan við Strákagöng vegna skriðufalla, samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Í frétt á Vísi.is segir að starfsmenn Vegagerðarinnar vinni hörðum höndum að því hreinsa veginn sitthvoru megin við Strákagöng.
„Þetta er margra daga vinna að hreinsa þetta upp. Það er alveg gríðarlegt magn af efnum sem hefur komið niður með þessu,“ segir Páll Kristjánsson, starfsmaður Vegagerðarinnar á Akureyri, í samtali við Vísi. Þá segist hann vonast til að hægt verði að opna vegina eftir helgi þó sé ekki öruggt að það takist.
Jafnframt bíði feiknavinna starfsmannanna utan vega en það geti tekið meira en viku að koma vegunum í samt lag á ný.